Frítt inn á stórleik KA og Vestra

Blak

KA tekur á móti Vestra í úrvalsdeild karla í blaki í kvöld klukkan 20:15. Það er heldur betur mikið í húfi en bæði lið eru í harðri baráttu um gott sæti í úrslitakeppninni og sannkallaður sex stiga leikur framundan.

Kjarnafæði býður ykkur frítt á völlinn en KA liðið hefur verið á mikilli siglingu að undanförnu og eru strákarnir svo sannarlega klárir í slaginn. Þá verðum við með hamborgara til sölu fyrir leik og eina vitið að mæta með alla fjölskylduna í kvöldmat í KA-Heimilið og styðja strákana okkar til sigurs í þessum mikilvæga leik 

Leikurinn verður á KA-TV fyrir þá sem ekki eiga heimangengt. Aðgengi að útsendingu KA-TV kostar 800 krónur og er aðgengileg á livey.events/ka-tv


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is