Karlalið KA í úrslit Ofurbikarsins

Blak
Karlalið KA í úrslit Ofurbikarsins
Úrslit framundan á morgun (mynd: EBF)

Á morgun er komið að úrslitastundinni í Ofurbikarnum í blaki sem fer fram hér á Akureyri um helgina. Karlalið KA tryggði sér sæti í úrslitaleiknum á morgun og virðist liðið vera að koma sér betur og betur í takt eftir tap í fyrsta leik mótsins.

Kvennalið KA tapaði hinsvegar hreinum úrslitaleik gegn HK í síðustu viðureign dagsins um hvort liðið myndi mæta Aftureldingu í úrslitaleiknum og leikur því um þriðja sætið á mótinu.

KA-TV verður með þrjá leiki í beinni á morgun en leikjaplan morgundagsins er eftirfarandi:

Sunnudagur - KA-Heimilið

09:00 Brons: KA - Þróttur Nes Kvenna | KA-TV
09:00 Brons: HK - Þróttur Nes Karla
11:30 Úrslit: Afturelding - HK Kvenna | KA-TV
14:00 Úrslit: Afturelding - KA Karla | KA-TV

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is