Lucia og Mateusz best á lokahófi blakdeildar

Blakdeild KA gerði upp flottan vetur á glæsilegu lokahófi í KA-Heimilinu í gær en karlalið KA varð Íslandsmeistari eftir hörkurimmu við Þrótt og kvennalið KA varð í 2. sæti í deild, bikar og á Íslandsmótinu.

Þá er nýlokið glæsilegu öldungamóti sem blakdeildin stóð að en um 1.300 keppendur léku á mótinu sem fór fram í Boganum og KA-Heimilinu, það var því heldur betur ástæða til að fagna glæsilegum árangri innan sem utan vallar.

Lucia Martin Carrasco og Mateusz Jeleniewski voru valin bestu leikmenn ársins og eru þau bæði ansi vel að heiðrinum komin. Lucia steig gríðarlega upp í vetur og var einn stigahæsti leikmaður Unbrokendeildarinnar og var í lok tímabilsins valin besti díó deildarinnar. Mateusz sýndi enn og aftur í vetur að hann er einn allra besti frelsingi sem hefur leikið á Íslandi og batt saman vörn og móttöku karlaliðsins sem endaði með Íslandsmeistaratitlinum.

Kara Margrét Árnadóttir og Ágúst Leó Sigurfinnsson voru kjörin efnilegustu leikmenn liðanna en bæði eru þau í lykilhlutverkum í yngrilandsliðum Íslands. Kara sem leikur sem uppspilari fór fyrir liði KA-B sem vann 1. deildina í vetur auk þess að nýta tækifærin vel með aðalliði KA. Ágúst Leó var einn af bestu leikmönnum karlaliðs KA í vetur en þrátt fyrir ungan aldur leikur hann eins og leikmaður sem hefur leikið í efstu deild í 20 ár og gerir fá sem engin mistök. Þau Kara og Ágúst eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér og verður spennandi að sjá þau halda áfram að taka næstu skref á blakvellinum.

Valdís Kapitola Þorvarðardóttir og Pedro Jose Lozano Caballero voru valin bestu liðsfélagarnir en bæði eru þau miklir stemningskarakterar sem drífa liðsfélagana sína áfram með jákvæðni og stuðning.

Auður Pétursdóttir lék í vetur sinn 100. leik fyrir KA en Auður sem er enn aðeins 18 ára gömul steig sín fyrstu skref í meistaraflokki veturinn 2021-2022 og hefur bætt sig jafnt og þétt með hverju ári. Í vetur var hún ein besta miðjan í deildinni og sýndi sérstaklega góða takta þegar allt var undir í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.

Það verða þó nokkrar breytingar á KA liðunum næsta vetur en alls kveðja sex leikmenn kvennaliðið. Þetta eru þær Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir, Auður Pétursdóttir, Valdís Kapitola Þorvarðardóttir, Lilja Kristín Ágústsdóttir, Arnrún Eik Guðmundsdóttir og Jóna Margrét Arnarsdóttir en Jóna var fjarverandi og er því ekki á myndinni. Hjá körlunum kveður Kristófer Magni Magnússon og þökkum við þeim öllum kærlega fyrir frábæra veru í KA og ítrekum að dyrnar standa þeim að sjálfsögðu alltaf opnar.

Að lokum fékk Julia Bonet Carreras glæsilegt áritað plaggat með Herberti Guðmundssyni en Julia er einn mesti aðdáandi Hebba en Herbert tróð uppi á lokahófi Öldungs á dögunum en Julia var því miður fjarverandi en fékk þessa glæsilegu gjöf í sárabætur.