Mateo stýrir Íslandsmeistaraliðum KA áfram

Steinþór Traustason formaður blakdeildar og Mateo sáttir við undirritunina
Steinþór Traustason formaður blakdeildar og Mateo sáttir við undirritunina

Miguel Mateo Castrillo skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við blakdeild KA og stýrir því áfram karla- og kvennaliðum KA í blaki auk þess að leika áfram með karlaliðinu.

Þetta eru ákaflega jákvæðar fréttir enda hafa bæði lið verið afar sigursæl undir stjórn Mateo en bæði lið hömpuðu meðal annars öllum þeim titlum sem í boði voru á nýliðnum vetri og eru því Íslands-, Bikar- og Deildarmeistarar. Mateo hefur á sama tíma verið einn allra besti leikmaður landsins og verið ósjaldan stigahæsti leikmaður efstudeildar.

Á sama tíma tekur Mateo nú við yfirþjálfun allra yngriflokka sem við bindum miklar vonir við að muni lyfta okkar öfluga starfi upp á enn hærra plan en lið KA hömpuðu ófáum Íslands- og Bikarmeistaratitlum í yngriflokkunum í vetur auk þess sem mikil fjölgun hefur verið á iðkendum undanfarin ár.

Mateo mætti norður fyrir veturinn 2018-2019 og tók þá við stjórn liði meistaraflokks kvenna auk þess að spila með karlaliðinu. Fyrir komu Mateo hafði kvennalið KA einu sinni orðið Deildarmeistari en Mateo braut strax blað í sögu félagsins því stelpurnar urðu Íslands-, Bikar- og Deildarmeistarar á tímabilinu og þá var hann í lykilhlutverki í karlaliði KA sem lék sama leik og var KA fyrsta liðið í blaksögunni sem var handhafi allra titla karla og kvenna á sama tíma.

Þessi mikla velgengni hefur haldið áfram hjá stelpunum undir stjórn Mateo en stelpurnar hafa orðið Íslandsmeistarar fimm sinnum (2019, 2022, 2023, 2024 og 2025), Bikarmeistarar fjórum sinnum (2019, 2022, 2023 og 2025) og Deildarmeistarar sex sinnum (2019, 2020, 2022, 2023, 2024 og 2025). Óhætt er að fullyrða að titlarnir væru enn fleiri ef ekki hefði komið til covid veirunnar sem stöðvaði allar íþróttir á tímabili.

Mateo hefur á sama tíma verið einn besti leikmaður landsins og verið gríðarlega öflugur með karlaliðinu. Hann tók svo við sem spilandi aðalþjálfari karlaliðsins fyrir veturinn 2022-2023 og undir hans stjórn urðu strákarnir Íslandsmeistarar árið 2023 og loks hampaði liðið öllum titlunum sem í boði voru á nýliðnu tímabili og hefur KA því unnið þetta mikla afrek tvívegis að vera handhafi allra titla karla og kvenna á sama tíma en ekkert annað félag getur státað sig af því.

Eins og áður segir þá tekur Mateo nú við yfirþjálfun allra flokka en stefna KA er að fjölga enn frekar ungum og uppöldum leikmönnum í meistaraflokksliðum okkar og verður áfram spennandi að fylgjast með okkar frábæru liðum. Mateo er gríðarlega metnaðarfullur hefur heldur betur lyft starfi blakdeildar upp á hærra plan og erum við spennt að sjá hvernig starfið okkar þróast áfram með hann í brúnni.