Myndaveisla frá blakleik KA og HK í gær

Blak
Myndaveisla frá blakleik KA og HK í gær
Stemningin var mögnuð í gær (mynd: Þórir Tryggva)

Það var heldur betur líf og fjör í KA-Heimilinu í gær er KA og HK mættust í þriðja leik sínum í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna. KA liðið gat tryggt titilinn en gestirnir urðu að vinna til að halda lífi í sínum vonum. Það var vel mætt í stúkuna og áhorfendur létu vel í sér heyra.

Eftir hörkuleik voru það gestirnir sem fóru með sigur af hólmi og minnkuðu muninn í 2-1. Liðin mætast aftur á miðvikudaginn í Kópavogi og fá KA stelpurnar þá aftur tækifæri á að klára dæmið. Þórir Tryggvason ljósmyndari var á leiknum í gær og myndaði hann í bak og fyrir. Myndir hans má sjá með því að smella á myndina hér fyrir neðan.


Smelltu á myndina til að skoða fleiri myndir Þóris frá leiknum


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is