Myndaveisla frá hörkuleik KA og HK

Blak
Myndaveisla frá hörkuleik KA og HK
Frábær skemmtun í gær (mynd: EBF)

KA og HK mættust í hörkuleik í KA-Heimilinu í gærkvöldi í 2. umferð Mizunodeildar kvenna í blaki. Þarna mættust liðin sem hafa barist um titlana undanfarin ár og stóð leikurinn heldur betur undir nafni sem stórleikur.

Eftir háspennuleik fóru gestirnir úr HK með 1-3 sigur en HK vann endurkomusigur í fyrstu hrinu, KA liðið svaraði í þeirri næstu og jafnaði í 1-1 en aftur svöruðu gestirnir með sigri eftir svakalega þriðju hrinu.

Helena Kristín Gunnarsdóttir leikmaður KA varð svo fyrir slæmum meiðslum í upphafi fjórðu hrinu sem sló okkar lið útaf laginu og gestirnir gengu á lagið og unnu á endanum sannfærandi sigur í fjórðu hrinu og þar með í leiknum samanlagt 1-3. Óskum Helenu góðs bata.

Egill Bjarni Friðjónsson ljósmyndari var á svæðinu og býður hér til myndaveislu frá herlegheitunum, kunnum við honum bestu þakkir fyrir.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is