Myndaveisla frá Íslandsmeistaratitli KA í blaki karla

Blak
Myndaveisla frá Íslandsmeistaratitli KA í blaki karla
Gleðin var allsráðandi! (mynd: Þórir Tryggva)

Karlalið KA í blaki varð Íslandsmeistari á dögunum er liðið vann HK í svakalegum oddaleik í KA-Heimilinu. Leikurinn var jafn og spennandi og fór á endanum í oddahrinu þar sem KA liðið reyndist sterkara. Með sigrinum var því ljóst að KA er handhafi allra titla í blakinu bæði í karla- og kvennaflokki og er þetta annað árið í röð sem KA er þrefaldur meistari karlamegin.

Þórir Tryggvason ljósmyndari var á svæðinu og má sjá myndir hans frá leiknum sem og fögnuðinum að leik loknum með því að smella á myndina hér fyrir neðan.


Smelltu á myndina til að sjá fleiri myndir frá sigurfögnuðinum


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is