Myndaveisla frá sigri KA á Álftanes

Blak
Myndaveisla frá sigri KA á Álftanes
Fullt hús stiga hjá okkar frábæra liði (mynd: EBF)

KA vann afar góðan 3-0 sigur á Álftnesingum í KA-Heimilinu á miðvikudaginn. KA er því áfram með fullt hús stiga á toppi Mizunodeildar kvenna í blakinu og ljóst að okkar öfluga lið er staðráðið í því að verja Deildarmeistaratitilinn sem liðið vann ásamt öllum öðrum titlum síðasta tímabils.

Egill Bjarni Friðjónsson ljósmyndari var á leiknum og birtum við hér myndaveislu hans frá hasarnum. Þá minnum við á að ársmiðasalan er í fullum gangi hjá Blakdeild KA en ársmiðinn kostar 7.500 krónur og veitir aðgang að öllum heimaleikjum karla- og kvennaliðs KA í Mizunodeildunum.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is