Öldungur 2023 í umsjá KA og Völsungs

Blak
Öldungur 2023 í umsjá KA og Völsungs
Sigurlið KA á Öldung 2018

KA og Völsungur munu halda Öldung árið 2023 en Öldungur er stærsta öldungablakmót landsins. Gríðarleg gróska er í blaki öldunga á Íslandi og mikill fjöldi einstaklinga sem sækir þetta stóra mót ár hvert.

Þetta eru afar jákvæðar fréttir enda skilar mótið töluverðum tekjum bæði til umsjónaraðila en einnig til Akureyrarbæjar í heild enda mikill fjöldi sem mun sækja bæinn heim í tengslum við mótið.

KA hélt mótið síðast árið 2018 og tókst afar vel til og spennandi að röðin sé komin aftur að okkur, í þetta skiptið í samvinnu við Völsung. Öldungur fór síðast fram í Keflavík árið 2019 en hefur fallið niður undanfarin ár vegna Covid. Mótið fer þó loks fram á ný um mánaðarmótin í umsjá HK í Kópavogi og sendir KA ófá lið til leiks í karla- og kvennaflokki.

Þess má geta að KA hefur staðið uppi sem sigurvegari efstu deildar karla undanfarin ár þar sem helsta goðsögn blakdeildar KA, Davíð Búi Halldórsson hefur farið fremstur í flokki.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is