Paula del Olmo yfirþjálfari og verkefnastjóri blakdeildar KA

Paula og Brynjar Gauti Jóhannsson sátt við undirritunina
Paula og Brynjar Gauti Jóhannsson sátt við undirritunina

Paula del Olmo Gomez hefur verið ráðin yfirþjálfari yngriflokka sem og verkefnastjóri blakdeildar KA. Þetta er enn eitt stóra skrefið hjá blakdeild félagsins í átt að metnaðarfyllra og faglegra starfi en Paula hefur gegnt lykilstarfi í þróun blakstarfsins hjá KA frá árinu 2018.

Paula sem gekk í raðir KA fyrir veturinn 2018-2019 hefur verið ein besta blakkona landsins frá komu sinni norður en kvennalið KA hefur frá komu hennar hampað Íslandsmeistaratitlinum fimm sinnum, orðið Bikarmeistari fjórum sinnum og Deildarmeistari sex sinnum auk þess að verða Meistari Meistaranna í ófá skipti, nú síðast um þarsíðustu helgi.

En Paula hefur ekki einungis verið í lykilhlutverki innan vallar því hún hefur drifið áfram yngriflokkastarf blakdeildar sem hefur skilað sér í gríðarlegri aukningu iðkenda auk þess sem KA hefur verið afar sigursælt hvort sem er á Íslandsmóti eða í bikarkeppni BLÍ.

Það er ákaflega jákvætt að hafa fengið Paulu inn í þetta nýja og metnaðarfulla starf hjá blakdeildinni og höfum við mikla trú á því að hún muni halda áfram að bæta umgjörðina og metnaðinn í bæði starfi meistaraflokka KA sem og hjá yngriflokkunum okkar.