Kvennalið KA tekur á móti HK í Mizunodeildinni um helgina. Leikirnir eru kl. 20:30 á föstudaginn og 14:00 á laugardaginn í KA-heimilinu.
Stelpurnar hafa átt erfitt uppdráttar í deildinni í vetur en það skiptir ekki öllu máli þar sem að öll lið deildarinnar keppa í úrslitakeppninni sem hefst í mars. Batamerki hafa verið á leik liðsins að undanförnu og aldrei að vita hvað gerist um helgina.
Við hvetjum alla til þess að líta við í KA-heimilið um helgina og styðja stelpurnar okkar.
Einnig má minna KA-menn á höfuðborgarsvæðinu að í kvöld spilar KA gegn UMFA í Mosfellsbæ, frestaðan leik í 8. liða úrslitum bikarkeppni BLÍ.