Sigdís Lind Sigurðardóttir til liðs við KA

Blak
Sigdís Lind Sigurðardóttir til liðs við KA
Bjóðum Sigdísi velkomna í KA!

Kvennalið KA í blaki hefur borist mikill liðsstyrkur en Sigdís Lind Sigurðardóttir hefur skrifað undir hjá félaginu. Sigdís er 23 ára gömul og gengur til liðs við KA frá Kolding VK í Danmörku og ljóst að koma hennar mun styrkja KA liðið mikið en hún spilar miðju.

Þrátt fyrir ungan aldur þá hóf Sigdís meistaraflokksferil sinn með Aftureldingu árið 2014 og hefur brotið sér leið inn í A-landslið Íslands þar sem hún hefur leikið 5 landsleiki. Einnig hefur hún spilað með U17 og U19 ára landsliðum Íslands.

Við bjóðum Sigdísi hjartanlega velkomna í KA og verður gaman að fylgjast með henni í okkar öfluga liði á komandi vetri.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is