Sigur og töp um helgina hjá blakliðunum

Karla- og kvennalið KA mættu HK tvívegis um helgina í Mizuno-deildunum í KA-heimilinu.

Kvennaliðið reið á vaðið og lék við HK kl. 19:00 á föstudag. Þar fóru leikar þannig að HK vann 3-0 sigur. Sömu lið mættust síðan aftur daginn eftir og þá bitu KA-stelpur frá sér en ekki nægilega fast, því HK vann þann leik einnig, 3-1. Leik­ur­inn var bæði vel spilaður og skemmti­leg­ur. 

Stiga­hæst­ar í liði KA voru Unn­ur Árna­dótt­ir og Arn­rún Eik Guðmunds­dótt­ir með 8 stig hvor.

Karlalið KA lék við HK á föstudagskvöldinu, á eftir stelpunum. Þar höfðu gestirnir betur, 3-1. Sömu lið mættust aftur á laugardeginum og þar snéru strákarnir við blaðinu og sigruðu 3-2 eftir æsispennandi viðureign. Stiga­hæst­ir KA manna voru Ævarr Freyr Birg­is­son með 14 stig og Valþór Ingi Karls­son með 13 stig.