Sigurður Helgi og Inga Björg til liðs við KA

Bjóðum þau Sigurð Helga og Ingu Björg hjartanlega velkomin í KA
Bjóðum þau Sigurð Helga og Ingu Björg hjartanlega velkomin í KA

Blakdeild KA hefur borist góður liðsstyrkur fyrir komandi tímabil en systkinin Sigurður Helgi Brynjúlfsson og Inga Björg Brynjúlfsdóttir eru gengin í raðir KA frá Völsung á Húsavík.

Karlalið KA varð Íslandsmeistari í vetur og kvennalið KA varð í öðru sæti í öllum keppnum og klárt að bæði lið ætla sér áfram að berjast á toppnum. Koma þeirra Sigurðs og Ingu mun klárlega styrkja okkar öflugu lið ennfrekar og verður spennandi að fylgjast með framgöngu þeirra í gula og bláa búningnum.

Bæði hafa þau vakið verðskuldaða athygli undanfarin ár þrátt fyrir ungan aldur en bæði karla- og kvennalið KA munu byggja á ungum og efnilegum leikmönnum á komandi tímabili enda afar öflugt yngriflokkastarf hjá félaginu og gaman að fá þau Sigurð og Ingu inn í okkar metnaðarfulla umhverfi.

Sigurður Helgi er 19 ára gamall sem spilar á miðju. Hann hefur leikið fyrir Völsung frá því hann var 13 ára gamall en hann var valinn besti leikmaður Völsungs árið 2023 og var fyrirliði liðsins á síðustu leiktíð en Völsungur komst meðal annars í úrslitahelgi Kjörísbikarsins þar sem Sigurður átti virkilega gott tímabil. Hann hefur verið hluti af yngrilandsliðum Íslands auk þess að vera sigursæll í yngriflokkunum.

Inga Björg er 16 ára gömul og hefur undanfarin tvö ár verið kjörin efnilegasti leikmaður Unbrokendeildarinnar og það verðskuldað en Inga hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í lykilhlutverki í öflugu liði Völsungs sem lék til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn árið 2025 og féll úr leik gegn KA í undanúrslitum á nýliðnu tímabili. Inga hefur einnig verið fastamaður í yngrilandsliðum Íslands og var valin í draumalið SCA mótsins á Írlandi sumarið 2025 sem og í draumalið Evrópukeppni smáþjóða í janúar 2026 þar sem Ísland stóð uppi sem sigurvegari.