Gullverðlaunin hrannast inn í strandblakinu hjá blakdeild KA en í dag vann Sóldís Júlía Sigurpálsdóttir gull ásamt liðsfélaga hennar henni Helenu Kristjánsdóttur á SCA móti í flokki U18 sem fram fór í Andorra.
Á dögunum unnu bræðurnir Sölvi og Svanur Hafþórssynir gull í drengjaflokki mótsins en sigurinn tryggir þeim Sóldísi, Sölva og Svan sæti á lokamóti EM á næsta ári en þar verða þau komin upp í næsta aldursflokk, U20.
Þær Sóldís og Helena spiluðu frábærlega á mótinu en þær unnu alla leikina sína í riðlakeppninni mjög sannfærandi en þar lögðu þær lið frá Andorra, Írlandi og Norður-Írlandi og komu því á flugi inn í undanúrslitin. Þar mættu þær liði frá Skotlandi og enn sýndu Sóldís og Helena frábæra spilamennsku því þær unnu enn einn 2-0 sigurinn, nú 21-9 og 21-13.
Í úrslitunum mættu stelpurnar liði frá Færeyjum og enn sýndu stelpurnar hve öflugar þær eru því þegar leið á báðar hrinurnar stungu þær hreinlega af og unnust báðar hrinur 21-12 og leikurinn því samanlagt 2-0. Gull í höfn og þar með sæti á lokakeppni EM.

Sveinbjörg Lilja Ingólfsdóttir (til hægri) tók einnig þátt á mótinu og átti KA því tvo fulltrúa á mótinu en Sveinbjörg lék með Kötlu Björg Beck. Stelpurnar áttu góða leiki í riðlakeppninni en þurftu á endanum að sætta sig við að keppa um sæti 7.-9. en þar unnu þær öflugan 2-0 sigur á liði frá Norður-Írlandi en þurftu að sætta sig við tap gegn heimastúlkum frá Andorra og niðurstaðan því 8. sætið.
Frábær árangur hjá okkar mögnuðu fulltrúum og ljóst að það verður virkilega spennandi að fylgjast áfram með uppgangi blakdeildar KA í strandblakinu þar sem við eigum þrjá fulltrúa á EM næsta sumar.