Sölvi og Svanur unnu gull á SCA móti í Andorra

Frábær árangur hjá bræðrunum í Andorra
Frábær árangur hjá bræðrunum í Andorra

Sölvi og Svanur Hafþórssynir leikmenn KA gerðu sér lítið fyrir og unnu gullverðlaun á SCA móti í strandblaki í flokki U18 sem fram fór í Andorra.

Sölvi og Svanur sem eru tvíburar skipuðu landslið Íslands en þeir unnu alla sína leiki í riðlakeppninni án þess að tapa hrinu en þar lögðu þeir lið Andorra, Norður-Írlands, Gíbraltar og Skotlands. Þar með komust strákarnir beint í undanúrslit og mættu þar Gíbraltar. Að þessu sinni þurftu Sölvi og Svanur að hafa meira fyrir sigrinum en þeir unnu þó 2-0 sigur að lokum. Í úrslitunum mættu þeir heimamönnum í liði Andorra sem reyndist ekki fyrirstaða fyrir þá bræður sem unnu úrslitaleikinn sannfærandi og tryggðu sér gullið.

Með þessum glæsilega árangri hafa þeir Sölvi og Svanur tryggt sér sæti á lokamóti EM á næsta ári en þar verða þeir komnir upp í næsta aldursflokk svo drengirnir munu taka þátt í EM 2027 í flokki U20.

Næstu helgi fer fram sams konar mót í kvennaflokki en þar sendir Ísland tvö lið til leiks og á KA þar tvo fulltrúa en það eru þær Sóldís Júlía Sigurpálsdóttir og Sveinbjörg Lilja Ingólfsdóttir. Sóldís leikur með Helenu Kristjánsdóttur og Sveinbjörg með henni Kötlu Björg Beck. Óskum stelpunum okkar góðs gengis.