U19 vann gull á SCA mótinu - 3 frá KA

Blak
U19 vann gull á SCA mótinu - 3 frá KA
Jóna, Lovísa og Heiðbrá voru í eldlínunni

KA átti þrjá fulltrúa í U19 ára landsliði kvenna sem lék á Smáþjóðamótinu SCA um helgina en leikið var á Laugarvatni. Íslenska liðið mætti Gíbraltar, Möltu og Færeyjum. Fulltrúar KA voru þær Heiðbrá Björgvinsdóttir, Jóna Margrét Arnarsdóttir og Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir.

Á föstudag mætti Ísland liði Gíbraltar og vannst sá leikur 3-0. Sigur Íslands var aldrei í hættu en stelpurnar unnu hrinurnar 25-4, 25-9 og 25-5. Aftur vannst sannfærandi 3-0 sigur á laugardeginum er stelpurnar léku gegn Möltu en hrinurnar unnust 25-12, 25-15 og 25-10.

Færeyjar unnu einnig fyrstu tvo leiki sína og því var um hreinan úrslitaleik að ræða er liðin mættust í dag. Fyrsta hrina var jöfn og spennandi en gestirnir leiddu lengst af. Íslenska liðið sýndi hinsvegar styrk sinn er mest á reyndi og vann að lokum 26-24 sigur eftir upphækkun.

Gestirnir svöruðu þór hressilega fyrir sig í annarri hrinu og unnu að lokum sannfærandi 17-25 sigur og jöfnuðu þar með metin í 1-1. Stelpurnar sneri dæminu aftur við í þriðju hrinu og unnu hana 25-20 eftir að hafa leitt frá fyrsta stigi og staðan því orðin 2-1. Aftur svaraði þó Færeyska liðið og þær knúðu fram oddahrinu með 18-25 sigri í fjórðu hrinu.

Eftir að Færeyjar höfðu komist í 1-4 í upphafi oddahrinunnar sneri íslenska liðið dæminu sér ívil og vann að lokum 15-10 sigur og leikinn því samtals 3-2. Stelpurnar unnu þar með alla leikina á mótinu og standa uppi sem sigurvegarar.

Þetta var fyrsta landsliðsverkefni stelpnanna í langan tíma vegna Covid aðstæðnanna og er virkilega gaman að sjá allt að fara aftur í rétt horf enda landsliðsverkefni frábær gulrót fyrir leikmenn til að gera enn betur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is