Landsbankinn framlengir við blakdeild KA

Blak
Landsbankinn framlengir við blakdeild KA
Arnar Már og Arnar Páll skrifa undir samninginn

Landsbankinn og blakdeild KA framlengdu á dögunum styrktarsamning sinn til næstu tveggja ára. Landsbankinn hefur verið öflugur bakhjarl blakdeildar sem og annarra deilda félagsins og erum við afar þakklát fyrir áframhaldandi samstarf sem skiptir sköpum í okkar metnaðarfulla starfi.

Undirritun samningsins fór fram í höfuðstöðvum Landsbankans á Akureyri en Arnar Már Sigurðsson formaður blakdeildar KA og Arnar Páll Guðmundsson fyrir hönd Landsbankans skrifuðu undir.

Það er gríðarlegur kraftur í blakstarfinu en mikil aukning hefur orðið í yngriflokkum KA auk þess sem meistaraflokkar félagsins standa í ströngu í úrvalsdeildum karla og kvenna en kvennalið KA er ósigrað á toppi deildarinnar með fullt hús stiga.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is