Þann 25. apríl síðastliðinn fóru elstu iðkendur okkar á Vormót eldri flokka.
Alls kepptu fyrir hönd KA fjögur lið í þremur flokkum.
Bæði lið í 1.flokki/meistaraflokk (H1) komust á verðlaunapall í stökkfimi; KA gular enduðu í 2. sæti og KA bláar í 3. sæti.
2. flokkur (H2) hafnaði í 4. sæti og 3. flokkur (H3) í 5. sæti.
Frammistaða liðanna var félaginu til mikils sóma og sýndu iðkendurnir bæði mikinn metnað, góða liðsheild og baráttuvilja á mótinu. Vegna mikilla breytinga hjá félaginu á undanförnum misserum viljum við sérstaklega hrósa iðkendum og þjálfurum deildarinnar, ásamt þeim sem hafa lagt sitt af mörkum við að byggja upp öflugt starf á ný.
Það er ljóst að framtíðin er björt hjá Fimleikadeild KA og verður spennandi að fylgjast með þessum efnilegu iðkendum.
KA óskar öllum þátttakendum innilega til hamingju með árangurinn og þakkar þjálfurum og aðstandendum fyrir sitt framlag.
hægt er að skoða stigagjöf hér : https://live.sporteventsystems.se/Score/WebScore/3620?f=8023&country=isl&year=2026