Þeir Sólon Sverrisson og Patrekur Páll Pétursson stóðu sig frábærlega á Norðurlandamóti 2025 sem fór fram helgina 6-8 Júní í Alaborg, Danmörku. Sólón keppti fyrir íslandshönd í unglingaflokki á meðan Patrekur keppti í drengjaflokki. Báðir voru deildinni til sóma
Patrekur komst í úrslit á Bogahest, hringjum og tvíslá, og stóð sig með prýði - en þetta er fyrsta mótið sem hann tekur þátt í fyrir íslandshönd.
Sólon keppti til úrslita á stökki og tvíslá, enn hann tók annað sætið á stökki!
Fimleikadeild KA er stolt af þessum glæsta árangri og óskar þeim Sólon og Patrek innilega til hamingju með flotta framistöðu.
Lesa nánar : https://fimleikasamband.is/fjorir-nordurlandameistaratitlar-i-hus/