Glæsilegur árangur Sólóns á alþjóðlegu móti í Berlín

Kári Pálmasson (til vinstri) ásamt Sólón (til hægri) á International Junior Team Cup
Kári Pálmasson (til vinstri) ásamt Sólón (til hægri) á International Junior Team Cup

Sólón Sverrisson, iðkandi hjá Fimleikadeild KA, sýndi frábæra frammistöðu á International Junior Team Cup, sem fram fór í Berlín dagana 15.–18. maí 2025. Hann keppti með unglingalandsliði Íslands í áhaldafimleikum. 

Sólón náði einstökum árangri og hafnaði í 3. sæti í stökki – og var þar með einn af aðeins tveimur íslenskum keppendum sem unnu til verðlauna á mótinu.

Hér má sjá video af úrslitum á stökki, Sólón tekur fyrra stökkið 01:59:20
https://www.youtube.com/watch?v=UoypOQa0m8I&list=PLDXPMnPQLhfCgQEBJnjqIJBXSZk6n3GJn&index=14

Sjá frétt frá FSÍ hér : https://fimleikasamband.is/tvenn-verdlaun-i-berlin/