Íslandsmót í Áhaldafimleikum

ATH fréttin hefur verið uppfærð
Íslandsmót í áhaldafimleikum fór fram núna síðast liðna helgi og átti Fimleikadeild KA flottan hóp á þessu móti.
 
- Sólon Sverrisson - unglingaflokkur karla
- Aníta Ösp Róbertsdóttir - 1 þrep kvenna
- Ester Katrín Brynjarsdóttir - 1 þrep kvenna
- Patrekur Páll Pétursson - 2 þrep karla.
 
Sólon keppti til úrslita á 5 áhöldum, fékk 2 gullverðlaun ásamt 3 silfurverðlaunum.
Patrekur náði 75.0,31 stigum og þar með náði hann þrepinu einnig.
Aníta fékk brons verðlaun á gólfi og náði 5 sæti yfir allt.
Ester lenti svo í 8 sæti yfir allt. 
 
Við óskum þessum iðkendum kærlega til hamingu með virkilega góðan árangur