Við hjá Fimleikadeild KA erum að leita að metnaðarfullum einstaklingum til að ganga til liðs við okkur sem hópfimleikaþjálfarar. Ef þú hefur brennandi áhuga á að þjálfa börn og ungmenni, ert sjálfstæð/ur og tilbúinn til að vinna með og efla fimleikafærni iðkenda okkar, þá viljum við heyra frá þér!
Umsóknir skulu sendar á fim.formadur@ka.is.
Vinsamlegast sendið umsókn sem inniheldur kynningarbréf, ferilskrá (CV) sem lýsir menntun, þjálfunarreynslu og fyrri störfum, ásamt meðmælendum (nafn, hlutverk og samskiptaupplýsingar).