Efri röð: Sólon Sverrisson, Patrekur Páll Pétursson, Ármann Ketilsson og Kristjana Ómarsdóttir
Neðri röð: Patricija Petkuté, Sara Líf Júlíusdóttir og Silvía Marta Águstsdóttir
Í dag fór fram Vorsýning Fimleikadeildar KA, sem haldin er árlega með pompi og prakt.
Mattý, Kara og Lovísa, þjálfarar við fimleikadeildina, voru listrænir stjórnendur sýningunar en aðrir þjálfarar tóku mikin þátt við undirbúning á atriðum.
Við eigum frábæra og hæfileikaríka iðkendur sem stóðu sig svo sannarlega með prýði
Þá voru afhent blóm fyrir þrep og afrek sem unnin voru á starfsárinu 2024 - 2025.
4 iðkendur náðu þrepi:
Patrekur Páll Pétursson náði 2 þrepi
Silvía Marta Águstsdóttir náði 4 þrepi
Sara Líf Júlíusdóttir náði 5 þrepi
Patricija Petkuté náði 5 þrepi
Afrek sem unnin voru á árinu eru:
- Ármann Ketilsson, yfirþjálfari krílahópa, var valinn þjálfari ársins á uppskeruhátíð Fimleikasambands íslands.
- Kristjana Ómarsdóttir varð Evrópumeistari en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland verður Evrópumeistari í blönduðu liði unglinga. Kristjana hlaut einnig Böggubikarinn 2024, en sá bikar er veittur þeim sem þykja efnileg í sinni grein, séu til fyrirmyndar á æfingum og í keppnum.
- Sólon Sverrisson var valinn í Unglingalandslið Íslands í áhaldafimleikum fyrir Junior Team Cup og Norðurlandamót unglinga og drengja.
- Patrekur Páll Pétursson var valinn í Drengjalið Íslands í áhaldafimleikum fyrir Norðurlandamót unglinga og drengja.
Fimleikadeild KA þakkar iðkendum, þjálfurum og öðrum velunnurum veitta aðstoð.