Erlingur upp í goðsagnarhöll KA

Handbolti
Erlingur upp í goðsagnarhöll KA
Erlingur er mættur! (mynd: Þórir Tryggva)

Fyrir leik KA og ÍBV um helgina var Erlingur Kristjánsson vígður inn í goðsagnarhöll handknattleiksdeildar KA. Erlingur er einhver sögufrægasti félagsmaður KA og bætist í hóp með þeim Patreki Jóhannessyni, Guðjóni Val Sigurðssyni og Valdimar Grímssyni í goðsagnarhöll KA.

Í handboltanum var Erlingur fyrirliði KA og hann varð Íslandsmeistari árið 1997, Bikarmeistari árin 1995 og 1996 auk þess að verða Deildarmeistari árin 1996, 1998 og 2001. Auk þess er hann leikjahæsti leikmaðurinn í handknattleikssögu félagsins með 577 leiki.

Einnig var hann fyrirliði Íslandsmeistara KA í knattspyrnu árið 1989 og er eini maðurinn í sögunni til að vera fyrirliði Íslandsmeistaraliðs í handbolta og fótbolta.

Það er Erlingur, stuðningsmannafélag KA í Reykjavík, sem kemur að vígslu Erlings í goðsagnarhöllina en framtakið virkar þannig að fyrirtæki geta haft samband við deildina og keypt goðsögn úr handboltastarfinu og fá þar með merki sitt á strigann með myndinni af leikmanninum auk texta yfir hans helstu afrek með KA.

Við munum halda áfram að vígja fleiri kappa inn í höllina en hafir þú eða þitt fyrirtæki áhuga á að taka þátt í þessu skemmtilega framtaki skaltu endilega hafa samband í netfangið agust@ka.is. Þetta er kjörin auglýsing enda strigarnir ansi sýnilegir.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is