Fríar tækniæfingar í handboltanum

Handbolti
Fríar tækniæfingar í handboltanum
Aukaæfingarnar skapa meistarana!

Unglingaráð KA í handbolta býður upp á sérhæfðar tækniæfingar fyrir stráka og stelpur á eldra ári í 6. flokki og upp í 3. flokk. Áhersla er lögð á einstaklingsfærni svo sem skottækni, gabbhreyfingar og sendingartækni. Þetta er þriðja árið sem þessar æfingar eru í boði og hefur verið mikil ánægja með þessa viðbót í starfið.

Öllum iðkendum KA og KA/Þórs í þessum árgöngum stendur til boða að nýta sér æfingarnar endurgjaldslaust. Skráning á æfingarnar er í gegnum netfangið jonni@ka.is.

Markmiðið með þessum æfingum er að bjóða okkar iðkendum sem þess óska að æfa aukalega, þar sem unnið verður með að bæta skottækni, auka skilning og bæta getu maður á mann, jafnt í vörn og sókn.

Sú nýbreytni verður í ár að við munum bjóða upp á æfingar sérstaklega út frá þeirri stöðu sem iðkendur leika og verða séræfingar fyrir markmenn.

Æfingarnar fara fram milli klukkan 6:20 til 7:20 á morgnana og eru eftirfarandi:

  þriðjudagar föstudagar
7.jan-27.jan 3.-4.fl. kvk 3.-4.fl. kk
28.jan-17.feb 3.-4.fl. kvk 3.-4.fl. kk
  miðvikudagar föstudagar
18.feb-3. mars 5.-6.fl. kvk 5.-6. fl. kk
  mánudagar þriðjudagar
4.mars-10.mars 5.-6. fl. kk 5.-6.fl. kvk
  miðvikudagar föstudagar
11.mars-17.mars hornamenn/línumenn (eldri) hornamenn/línumenn (yngri)
  mánudagar þriðjudagar
18.mars-24.mars útispilarar (yngri) útispilarar (eldri)
  miðvikudagar föstudagar
25.mars-31. mars hornamenn (eldri) hornamenn (yngri)
1.apr-7.apr útispilarar/línumenn (eldri) útispilarar/línumenn (yngri)
8.apr- 14.apr Allir (eldri) Allir (yngri)

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is