Handboltaæfingar fara aftur af stað

Handbolti

Handboltavertíðin fer að hefjast á ný eftir smá sumarfrí og munu yngriflokkar KA og KA/Þórs hefja æfingar þriðjudaginn 4. ágúst næstkomandi. Athugið að eftirfarandi tafla gildir út næstu viku og verða örlitlar breytingar á æfingatímum milli vikna hjá sumum flokkum fram að skólabyrjun.

Æfingar hjá 7. og 8. flokk hefjast við skólabyrjun og þá birtum við endanlega vetrartöflu.

Allar æfingar munu birtast inn í Sportabler og verða allar æfingar í KA-Heimilinu fram að skólabyrjun.

Aldursskipting flokka:
6. flokkur 2009-2010
5. flokkur 2007-2008
4. flokkur 2005-2006
3. flokkur 2002-2004


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is