Handboltaleikjaskólinn hefst á sunnudaginn

Handbolti

Handboltaleikjaskóli KA hefst á sunnudaginn, 25. september, eftir gott sumarfrí en skólinn hefur slegið í gegn undanfarin ár. Viðtökurnar hafa verið frábærar og hefur heldur betur verið gaman að fylgjast með krökkunum kynnast handbolta á skemmtilegan hátt.

Í ár eru það hressir krakkar fæddir 2017-2020 sem eru hluti af skólanum en æfingarnar eru byggðar upp þannig að hver og einn fái sín verkefni bæði í leikjum og með bolta. Þetta er því frábært tækifæri á að koma krökkum af stað í boltanum.

Skólinn fer fram á sunnudögum klukkan 10:00 í íþróttasal Naustaskóla og hefst eins og fyrr segir núna um helgina. Leikjaskólinn fer fram tólf sinnum fram að áramótum.

Skráning fer fram í gegnum Sportabler og kostar aðgangur að skólanum fram að áramótum 13.500 krónur.

Smelltu hér til að skrá þig í Sportabler


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is