KA og KA/Þór fengu bæði útileiki

Handbolti

Dregið var í 16-liða úrslitum í Coca-Cola bikarnum í handboltanum í dag og voru bæði karlalið KA og kvennalið KA í pottinum. Bæði lið fengu útileik en KA sækir Aftureldingu heim í Mosfellsbæinn og KA/Þór sækir Selfyssinga heim.

KA og Afturelding mættust í hörkuleik í Olís deildinni fyrr í vetur þar sem Mosfellingar fóru með eins marks sigur af hólmi og má því reikna með hörkuleik í baráttunni um sæti í 8-liða úrslitunum. Áætlað er að leikurinn fari fram 21. nóvember.

Selfoss leikur í Grill-66 deildinni kvennamegin og er liðið með fullt hús stiga þar eftir að hafa fallið úr efstu deild í fyrra. Stelpurnar þurfa klárlega að vera á tánum gegn spræku liði Selfyssinga til að tryggja sig áfram í næstu umferð. Áætlað er að leikurinn fari fram 6. nóvember.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is