KA/Þór lagði Fram öðru sinni að velli

Handbolti
KA/Þór lagði Fram öðru sinni að velli
Ótrúleg frammistaða (mynd: Þórir Tryggva)

KA/Þór beið krefjandi verkefni í kvöld þegar liðið tók á móti Íslandsmeisturum Fram í 19. umferð Olís deildar kvenna í handbolta. Stelpurnar höfðu unnið fyrri viðureign liðanna í KA-Heimilinu í vetur og ljóst að gríðarlega sterkt lið gestanna hyggði á hefndir.

Það var hinsvegar ljóst strax frá fyrstu mínútu að okkar lið var mætt í leikinn til þess að sækja sigur. Stelpurnar voru staðráðnar í að svara fyrir slakan leik í síðustu umferð gegn toppliði Vals og leiddu leikinn með tveimur til þremur mörkum nær allan fyrri hálfleikinn. Martha Hermannsdóttir fór fyrir sóknarleiknum og virtist ekki geta annað en að skila boltanum í netið.

Eftir um tuttugu mínútna leik leiddi KA/Þór 9-7 en þá kom erfiður kafli og Framliðið gerði næstu 5 mörk í leiknum. Það er ákaflega erfitt verkefni að elta jafn sterkt lið og Fram en eins og svo margoft hefur sýnt sig í vetur þá gefst okkar lið aldrei upp og stelpurnar jöfnuðu metin í 14-14 eftir frábæra innkomu hjá hinni ungu Rakel Söru Elvarsdóttur sem gerði þrjú mörk í röð.

Gestirnir áttu síðasta markið í hálfleiknum og leiddu því 14-15 í hléiunu en KA/Þór leiddi í 21 mínútu og 48 sekúndur af fyrri hálfleiknum og því ansi svekkjandi að vera marki undir. Olgica Andrijasevic varði 4 skot í fyrri hálfleik gegn 11 skotum hinum megin en sú átti heldur betur eftir að stíga upp í síðari hálfleik.

Tímalína fyrri hálfleiks

Síðari hálfleikur var spennuþrunginn og mikil skemmtun, Fram leiddi fyrri hluta hálfleiksins en eftir að KA/Þór tók forystuna í stöðunni 23-22 litu stelpurnar aldrei um öxl og náðu góðu taki á leiknum. Sólveig Lára Kristjánsdóttir sýndi frábæra takta í sókninni og þá tók Olgica í markinu nokkra risabolta sem hélt okkar liði í forystunni.

Er tæpar fimm mínútur lifðu leiks var staðan 28-25 og þrátt fyrir ýmsar tilraunir Framara til að brjóta upp leikinn þá héldu stelpurnar haus og sigldu á endanum frábærum 29-27 sigri í hús.

Tímalína seinni hálfleiks

Mörk KA/Þórs: Martha Hermannsdóttir 10, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 8, Rakel Sara Elvarsdóttir 4, Aldís Ásta Heimisdóttir 2, Ásdís Guðmundsdóttir 2, Katrín Vilhjálmsdóttir 2 og Ólöf Marín Hlynsdóttir 1 mark. Olgica Andrijasevic varði 14 skot í markinu.

Þarna lögðu stelpurnar Íslandsmeistarana öðru sinni að velli í vetur og eru eina liðið í deildinni til að afreka það sem segir allt um hve stórt þetta er hjá okkar frábæra liði sem er nýliði í deildinni og var spáð neðsta sæti fyrir veturinn af flestum sérfræðingum.

Frammistaðan í kvöld var stórkostleg og í raun næstum því fullkomin. Fyrir utan smá kafla í fyrri hálfleik þar sem Fram gerði 5 mörk í röð þá gerði liðið fá mistök og var að spila frábæran handbolta. Það var æðislegt að sjá hvern leikmanninn á fætur öðrum stíga upp og láta það ekki trufla sig að spennan væri í hámarki og að verið væri að leika gegn einu sterkasta liði landsins.

Niðurstaðan í vetur er ljós, stelpurnar enda í 5. sæti og eiga það svo sannarlega skilið að vera eitt af fimm bestu liðum landsins, með örlítilli heppni væri enn möguleiki á sæti í úrslitakeppninni sem hefði verið ótrúlegur bónus við þennan magnaða vetur.

Nú eru aðeins tveir leikir eftir af tímabilinu en stelpurnar sækja ÍBV heim til Vestmannaeyja laugardaginn 30. mars og taka svo á móti Stjörnunni 2. apríl í KA-Heimilinu.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is