KA/Þór tekur á móti Val í stórleik

Handbolti

Það er heldur betur stórleikur á dagskrá í KA-Heimilinu í dag þegar KA/Þór tekur á móti Val í síðasta heimaleik sínum í Olísdeildinni í vetur. Stelpurnar eru á toppi deildarinnar ásamt Fram þegar aðeins tvær umferðir eru eftir og risastig í húfi.

Aðeins 100 miðar eru í boði á leikinn og hefst miðasala í KA-Heimilinu kl. 12:00. Athugið að ársmiðahafar í Stubb þurfa að mæta tímanlega og sýna miðann til að tryggja sér miða á leikinn.

Fyrir þá sem ekki komast verður leikurinn í beinni á KA-TV, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is