Martha markadrottning í Olís kvenna

Handbolti
Martha markadrottning í Olís kvenna
Stórfenglegur vetur að baki hjá Mörthu og KA/Þór

Lokaumferðin í Olís deild kvenna í handboltanum fór fram í kvöld og tók KA/Þór á móti Stjörnunni. Lítið var undir í leiknum en það var ljóst að okkar lið myndi enda í 5. sæti deildarinnar og gestirnir í 6. sætinu. Það var hinsvegar mikið undir á einni vígstöð en fyrir leikinn var Martha Hermannsdóttir með eitt mark í forskot í baráttunni um markadrottningstitilinn.

KA/Þór gerði fyrsta mark leiksins í þéttsetnu KA-Heimili en Íslandsbanki og PWC bauð frítt á leikinn og var mætingin til fyrirmyndar. En við þurftum að bíða þó nokkuð lengi eftir næsta marki okkar liðs og lið Stjörnunnar gekk á lagið. Skyndilega var staðan orðin 1-7 og útlitið ekki gott.

En stelpurnar hafa svo oft sýnt það í vetur að þær gefast aldrei upp og þegar leið á fyrri hálfleikinn fóru þær að finna taktinn bæði varnarlega og sóknarlega auk þess sem Olgica Andrijasevic fór að verja vel í markinu. Hálfleikstölur voru 10-12 fyrir Stjörnunni og stefndi allt í hörku baráttu um sigurinn.

Stelpurnar minnkuðu muninn í 11-12 í upphafi síðari hálfleiks en gestirnir náðu þá góðum kafla og náðu fjögurra marka forskoti. Aftur tókst stelpunum að minnka muninn í 16-17 þegar kortér var til leiksloka og gríðarleg stemning í húsinu.

Í stað þess að fá geggjaðar og spennandi lokamínútur þá slökknaði á sóknarleik okkar liðs og Stjarnan fór á endanum með sannfærandi 21-27 sigur. Pínu svekkjandi að ná ekki heilsteyptari leik fyrir framan alla áhorfendurna sem mættu á leikinn en stelpurnar verið stórkostlegar í vetur og vissulega ekki mikið undir í leiknum.

Martha Hermannsdóttir gerði alls 10 mörk í leiknum og það var nóg til að tryggja markadrottningstitilinn en Martha gerði 138 mörk í 21 deildarleik í vetur. Hún er ansi vel að þessu komin enda verið hreint út sagt stórkostleg í vetur hvort sem er sóknarlega eða varnarlega. Martha lék loksins sinn fyrsta A-landsleik og sýndi enn og aftur hvers megnug hún er.

Við viljum óska Mörthu til hamingju með titilinn en einnig öllum sem koma að KA/Þór liðinu til hamingju með glæsilegan vetur. Liðinu sem var spáð neðsta sæti af nær öllum sérfræðingum endar í 5. sæti og var miklu nær því að fara í úrslitakeppnina heldur en að falla nokkurn tímann, algjörlega til fyrirmyndar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is