Matea Lonac framlengir við KA/Þór

Handbolti
Matea Lonac framlengir við KA/Þór
Elvar og Matea handsala samninginn í dag

Matea Lonac skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við handknattleikslið KA/Þórs. Þetta eru gífurlega jákvæðar fréttir enda hefur Matea verið frábær í marki liðsins undanfarin tvö tímabil. Í vetur er Matea með hæstu prósentuvörslu í Olísdeildinni af aðalmarkvörðum liðanna.

KA/Þór er í efsta sæti Olísdeildar kvenna fyrir lokaumferðina sem fer fram um næstu helgi er liðið leikur hreinan úrslitaleik við Fram um Deildarmeistaratitilinn. Þá er liðið komið áfram í undanúrslit úrslitakeppninnar um Íslandsmeistaratitilinn og ansi spennandi tímar framundan.

Það er ákaflega jákvætt að stjórn KA/Þórs sé búið að framlengja við Mateu og ljóst að liðið ætlar sér áfram að vera í fremstu röð í handboltanum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is