Myndaveisla frá fyrsta heimaleiknum

Handbolti
Myndaveisla frá fyrsta heimaleiknum
Einar Rafn fór á kostum (mynd: Þórir Tryggva)

Handboltinn er farinn að rúlla og var heldur betur líf og fjör í KA-Heimilinu á dögunum er KA tók á móti ÍBV í fyrsta heimaleik vetrarins. Eftir æsispennandi leik þurftu liðin að sættast á jafnan hlut eftir 35-35 jafntefli.

Stemningin sem myndaðist í húsinu var algjörlega til fyrirmyndar og alveg ljóst að það er magnaður handboltavetur framundan hjá okkar liðum en bæði karlalið KA og kvennalið KA/Þórs eru að byggja á ungum og spennandi uppöldum leikmönnum.

Við minnum á að ársmiðasalan er í fullum gangi í Stubb en einnig er hægt að nýta sér sérstakt tvennutilboð í upphafi vetrar í KA-Heimilinu þar sem þú færð ársmiða hjá KA og KA/Þór saman á aðeins 30.000 krónur.

Þórir Tryggvason ljósmyndari var á leiknum gegn ÍBV og býður hér til frábærrar myndaveislu frá hasarnum og kunnum við honum bestu þakkir fyrir framtakið.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris frá leiknum


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is