Myndaveislur frá naumu tapi gegn Aftureldingu

Handbolti
Myndaveislur frá naumu tapi gegn Aftureldingu
Það vantaði herslumuninn í gær (mynd: EBF)

KA tók á móti Aftureldingu í Olís deild karla í gær en fyrir leikinn voru gestirnir í 2. sæti deildarinnar og ljóst að verkefnið yrði ansi krefjandi. KA liðið var hinsvegar staðráðið í að svara fyrir slakan leik í síðustu umferð og það sást strax frá fyrstu mínútu.

Varnarleikurinn var í fyrirrúmi hjá liðunum í upphafi og var lítið skorað. Mikil spenna var í húsinu enda var jafnt á öllum tölum fyrri hálfleiks og má með sanni segja að leikurinn hafi boðið upp á mikla skemmtun fyrir hina fjölmörgu stuðningsmenn KA sem lögðu leið sína á leikinn.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris Tryggvasonar frá leiknum

Staðan var 11-12 fyrir gestina þegar flautað var til hlés en strákarnir jöfnuðu jafn harðan í 12-12 í upphafi síðari hálfleiks. Þá kom hinsvegar slæmur kafli og Mosfellingar gerðu næstu fimm mörk leiksins. Þarna hefðu mörg lið brotnað en KA liðið sýndi virkilega flottan karakter og komu sér strax aftur í leikinn með fjórum mörkum í röð.

Stemningin í KA-Heimilinu varð algjörlega frábær í kjölfarið og KA liðið jafnaði loks metin í 20-20 og um tólf mínútur til leiksloka. Áfram var jafnt og mátti vart sjá hvoru megin sigurinn myndi enda. KA leiddi 23-22 er um fimm mínútur lifðu leiks en þá féll lítið með strákunum.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum

Gestirnir tóku yfir lokaandartökin og lönduðu á endanum 25-28 sigri. Gríðarlega svekkjandi niðurstaða eftir flotta frammistöðu þar sem strákarnir sýndu flottan baráttuanda. Einnig verður að benda á að þegar leið á leikinn komu nokkrir furðulegir dómar sem féllu gegn liðinu og í jafn jöfnum leik og um ræðir er það ansi dýrt þegar upp er staðið.

Dagur Gautason var markahæstur í liði KA með 5 mörk, Andri Snær Stefánsson gerði 3 (öll úr vítum), Jóhann Einarsson 3, Daníel Örn Griffin 3, Daníel Matthíasson 2, Patrekur Stefánsson 2, Sigþór Gunnar Jónsson 2, Allan Norðberg 2, Jón Heiðar Sigurðsson 1 og Einar Birgir Stefánsson 1 mark.

Í markinu varði Jovan Kukobat 12 skot þar af 1 vítakast. Varnarleikur KA liðsins var á köflum virkilega góður og tókst strákunum ansi oft að stoppa flæðið í hinum öfluga sóknarleik gestanna sem skapaði talsverðan usla.

Næsti leikur KA liðsins er gegn Haukum á útivelli á laugardaginn en Haukar eru á toppi deildarinnar og hafa ekki enn tapað leik í vetur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is