Olgica Andrijasevic til liðs við KA/Þór

Handbolti

Olísdeildarlið KA/Þórs í handboltanum barst í dag gríðarlegur liðsstyrkur þegar króatíski markvörðurinn Olgica Andrijasevic skrifaði undir 2 ára samning við liðið. Sunna Guðrún Pétursdóttir og Margrét Einarsdóttir skiptu markmannsstöðunni með sér á síðasta tímabili en þær hafa báðar yfirgefið liðið fyrir komandi tímabil.

Þetta eru frábærar fréttir enda markmannsstaðan gríðarlega mikilvægur póstur og erum við mjög spennt fyrir því að fá Olgicu norður í land.

KA/Þór vann sér sæti í deild þeirra bestu með því að sigra Grill 66 deildina á síðasta tímabili og það án þess að tapa leik. Fyrsti leikur vetrarins hjá stelpunum er 18. september þegar Valskonur koma í heimsókn í KA-Heimilið.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is