Skarphéðinn skrifaði undir fyrsta samninginn

Handbolti
Skarphéðinn skrifaði undir fyrsta samninginn
(mynd: Þórir Tryggva)

Skarphéðinn Ívar Einarsson skrifaði á dögunum undir sinn fyrsta samning við Handknattleiksdeild KA og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir KA þegar liðið vann góðan útisigur á HK í fyrstu umferð Olísdeildar karla.

Skarphéðinn sem er aðeins 16 ára gamall er gríðarlega efnileg vinstri skytta sem hefur verið fastamaður í æfingahópum yngrilandsliða Íslands og ljóst að það verður virkilega gaman að fylgjast áfram með framgöngu hans á vellinum.

Skarphéðinn var valinn maður leiksins er KA varð Bikarmeistari í 4. flokki í fyrra.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is