Stórsigur KA/Þórs í leiknum mikilvæga

Handbolti
Stórsigur KA/Þórs í leiknum mikilvæga
Frábær frammistaða í kvöld og góð 2 stig í hús

KA/Þór gerði sér lítið fyrir og vann 33-22 stórsigur á Selfyssingum í fyrsta leik Olís deildar kvenna eftir jólafrí. Leikurinn var sannkallaður fjögurra stiga leikur en fyrir leikinn var lið gestanna á botni deildarinnar með 4 stig en KA/Þór með 8 stig í 5. sætinu, það var því ansi mikið í húfi í baráttunni um áframhaldandi veru í deild þeirra bestu.

Leikurinn fór fjörlega af stað og var mikill hraði í leiknum. Okkar lið leiddi en gestirnir voru aldrei langt undan. Bæði lið spiluðu öfluga 6-0 vörn og var spilamennska liðanna keimlík þar sem færin komu aðallega úr seinni bylgjum.

Eftir rétt rúmar tíu mínútur var staðan jöfn 6-6 en þá kom öflugur kafli hjá KA/Þór sem komst í 12-8 og leiddi loks 16-10 er flautað var til hálfleiks. Olgica Andrijasevic var frábær í markinu og var markvarslan helsti munurinn á liðunum.

Tímalína fyrri hálfleiks

Síðari hálfleikur spilaðist svo ákaflega svipað og sá fyrri og var sigur okkar liðs aldrei í hættu. Selfyssingar reyndu ýmislegt til að slá okkar lið úr jafnvægi og komast inn í leikinn en það gekk erfiðlega og forskotið jókst.

Mestur varð munurinn 13 mörk í stöðunni 32-19 en lokatölur urðu 33-22 og stórkostlegur sigur staðreynd. Ekki nóg með að það sé frábært að halda áfram magnaðri spilamennsku eftir um tveggja mánaða hlé þá var leikurinn í kvöld algjör lykilleikur upp á framhaldið.

Tímalína seinni hálfleiks

Hulda Bryndís Tryggvadóttir lék við hvurn sinn fingur og gerði 8 mörk, flest eftir gegnumbrot. Þá var mjög ánægjulegt að sjá Aldísi Ástu Heimisdóttur aftur á vellinum eftir ristarbrot sem hefur haldið henni frá vellinum undanfarna fjóra mánuði, en Aldís gerði 4 mörk í leiknum. Einnig var gaman að sjá Örnu Valgerði Erlingsdóttur spreyta sig undir lokin en hún hefur sýnt gríðarlegan karakter í gegnum erfið axlarmeiðsli.

Í raun stóð allt liðið fyrir sínu en maður leiksins var þó Olgica Andrijasevic sem varði 23 skot í leiknum, þar af 4 vítaköst sem gerir um 55% markvörslu. Selma Sigurðardóttir Malmquist kom í markið undir lokin, varði 2 skot sem gerir 50% markvörslu, alls ekki slæm markvarsla það!

Martha Hermannsdóttir gerði 6 mörk og stóð fyrir sínu að vanda og hin 15 ára gamla Rakel Sara Elvarsdóttir gerði 5 mörk í hægra horninu. Katrín Vilhjálmsdóttir gerði 4 mörk í vinstra horninu og Sólveig Lára Kristjánsdóttir gerði 3 mörk. Þær Ásdís Guðmundsdóttir, Svala Björk Svavarsdóttir og Ólöf Marín Hlynsdóttir gerðu allar 1 mark í leiknum.

Frábær sigur staðreynd og liðið er því komið með 10 stig og er 6 stigum frá hreinu fallsæti nú þegar deildin er rétt rúmlega hálfnuð. Næsti leikur er útileikur gegn Stjörnunni á þriðjudaginn eftir viku og verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Það er einnig fjögurra stiga leikur og ljóst að stelpurnar þurfa að halda sama dampi gegn liði Stjörnunnar sem hefur verið að koma sér betur og betur í gang í vetur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is