Þegar KA lagði Ungverska risann

Handbolti
Þegar KA lagði Ungverska risann
Duranona tryggði sætan sigur KA undir lokin

KA varð Bikarmeistari karla í handknattleik annað árið í röð þegar liðið hampaði titlinum árið 1996. KA lék því aftur í Evrópukeppni Bikarhafa og var reynslunni ríkari eftir flottan árangur árið áður þar sem liðið komst í 16-liða úrslit keppninnar og sló meðal annars út Viking Stavanger frá Noregi sem við rifjuðum upp í gær.

Andstæðingar KA í 32-liða úrslitum keppninnar var Svissneska liðið ZMC Amicitia Zürich. Liðin féllust á að leika báða leikina í KA-Heimilinu og voru báðir leikir hádramatískir. Liðin gerðu jafntefli 27-27 í fyrri leiknum og aftur var jafnt í þeim síðari 29-29. KA liðið slapp hinsvegar með skrekkinn því fyrri leikurinn taldist heimaleikur KA og fór liðið því áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli!

Dramatíkin var öllu minni í 16-liða úrslitum þegar KA sló á sannfærandi hátt út Belgíska liðið HC Herstal Liége. Fyrri leikurinn var leikinn í KA-Heimilinu og vannst 26-20. Liðin mættust svo aftur í Belgíu og lauk þeim leik með 23-23 jafntefli. KA var þar með komið áfram í 8-liða úrslit keppninnar og ansi sterkir andstæðingar í pottinum.

Og erfiða andstæðinga fékk liðið svo sannarlega, því Ungverska stórveldið Veszprém kom uppúr hattinum. Veszprém vann keppnina 1992 og lék til úrslita árið 1993. Liðið hefur í dag leikið fjórum sinnum til úrslita í Meistaradeild Evrópu og orðið Ungverskur meistari 26 sinnum sem er met auk þess að hafa orðið Ungverskur Bikarmeistari 27 sinnum sem einnig er met.


KA vann sögufrægan sigur á Veszprém í KA-Heimilinu

Fyrri leikur liðanna fór fram í KA-Heimilinu þann 9. febrúar 1997 fyrir framan gríðarlegan fjölda stuðningsmanna KA. Leikur liðanna var fjörlegur, hraður og bauð upp á markaveislu. Gestirnir byrjuðu betur en strákarnir svöruðu fyrir sig og leiddu 17-15 er liðin gengu til búningsherbergja sinna.

Áfram var sóknarleikurinn í aðalhlutverki á kostnað varnar og markvörslu. Allt útlit var fyrir að Veszprém hefði tryggt sér jafntefli þegar liðið jafnaði í 31-31 á lokaandartökunum en Róbert Julian Duranona skoraði beint úr aukakasti er leiktíminn var liðinn og tryggði KA ævintýralegan 32-31 sigur á stórveldinu.

Að leik loknum bar þó á töluverðri óánægju hjá KA-mönnum enda útlit fyrir ansi erfiðan leik í Ungverjalandi. Enda kom það á daginn að síðari leikurinn tapaðist og féll KA liðið þar með úr leik. En það er ljóst að menn áttuðu sig líklega ekki almennilega á afrekinu að leggja risann að velli strax að leik loknum.

Þessir léku fyrir KA: Guðmundur Arnar Jónsson og Hermann Karlsson í markinu. Leó Örn Þorleifsson, Björgvin Þór Björgvinsson, Jóhann Gunnar Jóhannsson, Róbert Julian Duranona, Sergei Ziza, Erlingur Kristjánsson, Sævar Árnason, Þorvaldur Þorvaldsson, Jakob Jónsson og Heiðmar Felixson úti.

Mörk KA: Róbert Julian Duranona 14 (7), Björgvin Þór Björgvinsson 5, Sergei Ziza 4, Leó Örn Þorleifsson 3, Jóhann Gunnar Jóhannsson 3, Heiðmar Felixson 2 og Jakob Jónsson 1.

Umfjöllun Morgunblaðsins

Meistarabikarinn til KA-manna

Umfjöllun DV

Umfjöllun Dags Tímans


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is