Unnur Ómarsdóttir snýr aftur heim

Handbolti
Unnur Ómarsdóttir snýr aftur heim
Velkomin heim! (myndir: Þórir Tryggva)

Unnur Ómarsdóttir skrifaði í dag undir tveggja ára samning við KA/Þór og mun því leika með liðinu á komandi tímabili. Unnur sem er uppalin hjá KA/Þór snýr því aftur heim og verður virkilega gaman að sjá hana aftur í okkar búning í KA-Heimilinu.

Unnur sem er þrítug og leikur í vinstra horni kemur norður frá liði Fram en þar áður lék hún með Gróttu. Með Fram og Gróttu hefur Unnur unnið allt sem hægt er að vinna og ljóst að koma hennar mun styrkja okkar lið okkar töluvert í baráttunni í Olísdeildinni enda verið einn besti hornamaður deildarinnar undanfarin ár.

Þá lék Unnur einnig með liði Skrim í Noregi tímabilið 2014-2015 auk þess sem hún hefur leikið 29 landsleiki fyrir Íslands hönd og gert í þeim alls 28 mörk. Þar áður lék hún með öllum yngrilandsliðum Íslands.

Eins og fyrr segir er Unnur uppalin hjá KA/Þór og tók snemma fyrstu skrefin í meistaraflokki hjá félaginu. Hún lék með meistaraflokki hér fyrir norðan uns hún fór tvítug suður að loknum menntaskóla. Það verður því ansi gaman að sjá hana aftur í KA/Þór búningnum á komandi tímabili.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is