01.09.2006
Mark Bernat hinn nýi þjálfari okkar KA manna er væntanlegur til Akureyrar 5. september. Svo heppilega vildi til að Marek og fjölskylda hans gátu tekið flug beint frá Varsjá í Póllandi. Marek kemur því passlega til að taka við þjálfun yngriflokkanna en þeir hefja æfingar 7. september. Marek kemur til Akureyrar með 5 manna fjölskyldu sína. Konu og þrjú ung börn á aldrinum þriggja til sjö ára.
30.08.2006
Pólverjinn Marek Bernat hefur verið ráðinn yfirþjálfari hjá Blakdeild KA og er hann væntanlegur til landsins í byrjun september. Gerður hefur verið tveggja ára samningur við Marek sem er 46 ára gamall og mun hann flytja til landsins ásamt fjölskyldu sinni, konu og þremur börnum. Auk þess að þjálfa meistaraflokka karla og kvenna mun Marek þjálfa hluta yngri flokka félagsins
20.08.2006
Fyrir nokkrum vikum hafði blaðmaður á vegum sportblaðsins samband við undirritaðan og óskaði frétta af fimleikum á Akureyri.Þar sem ég er nýr í stjórn og fimleikar hafa ekki verið stór þáttur í lífi mínu fyrr en dætur mínar fóru að stunda fimleika fyrir nokkrum árum, það er að segja að ég taldi að ég hefði ekki burði til að segja frá nægjanlega miklu úr starfinu.
17.08.2006
Eins og auglýst hefur verið þá er vetrarstarf FA að hefjast.Eins og er hafa 4 hópar verið kallaðir inn 21.ágúst n.k.A1, A2, F1 og F2.Aðrir hópar eiga með réttu að byrja 4.
10.08.2006
Þeir sem hafa heimsótt heimasíðu okkar í sumar hafa kannski orðið varir við að ekki hefur mikið verið að gerast að undanförnu.Það er að segja með innsetningu mynda, frétta eða annars.
06.07.2006
Davíð Búi Halldórsson var kjörinn formaður blakdeildar KA á aðalfundi deildarinnar nú á dögunum. Davíð tekur við starfinu af Stefáni Jóhannessyni sem gegnt hafði stöðunni undanfarin ár.
26.06.2006
Aðalfundur blakdeildar KA fer fram í KA heimilinu þriðjudagskvöldið 27. júní klukkan 20. Kosinn verður nýr formaður en núverandi formaður, Stefán Jóhannesson, gefur ekki kost á sér áfram.
22.06.2006
Í gær var fjárfest í áhöldum fyrir Fimleikafélagið að upphæð 2.383.000 kr.
07.06.2006
Þriðjudaginn 6.júni var úthlutað úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA styrkjum.
22.05.2006
Nýliðinn vetur hjá yngriflokkum KA í blaki var heldur rýrari í verðlaunum talið en stundum áður en þó náðist ágætur árangur í nokkrum flokkum á Íslandsmótunum tveimur í nóvember og apríl. Fimmti fl. b-liða náði bronsverlaunum í mjög sterkri deild b-liða og 3. fl. kvenna náði silfurverðlaunum í sínum flokki. Einnig náði 2. fl. karla silfurverðlaunum í sínum flokki.