Gull, tvö brons og mikil barátta: Frábær árangur KA á Íslandsmeistaramóti í júdó

Laugardaginn 9. maí fór fram Íslandsmeistaramót í júdó fyrir aldursflokkana U13, U15, U18 og U21. Mótið fór fram í húsakynnum Ármanns. Keppendur frá Júdódeild KA voru að sjálfsögðu mættir til leiks og stóðu sig með stakri prýði.

Það sem gerði árangur helgarinnar sérstaklega skemmtilegan var að allir okkar keppendur voru að stíga sín fyrstu skref í nýjum og hærri aldursflokkum. Þrátt fyrir það létu þau engan bilbug á sér finna

Helstu úrslit KA-manna á mótinu:

  • Vladyslava Ryzhkova keppti í fyrsta sinn í U15 ára flokki (+70 kg). Hún gerði sér lítið fyrir, sigraði sínar viðureignir og landaði glæsilegum gullverðlaunum og varð þar með Íslandsmeistari í sínum flokki!
  • Dagmar Steinþórsdóttir var einnig að keppa á sínu fyrsta móti í U15 ára flokki. Hún keppti í -70 kg flokki, barðist mjög vel og uppskar glæsilegt brons.
  • Þröstur Leó Sigurðsson stóð sig virkilega vel á sínu fyrsta móti í U18 ára flokki. Hann keppti í sterkum -73 kg flokki, sem er mikið afrek út af fyrir sig þar sem Þröstur er sjálfur aðeins um 67 kg. Hann sýndi góð tilþrif og tryggði sér verðskuldað brons.
  • Jóhanna Heiðrún Ágústsdóttir var að stíga sín fyrstu skref í U15 ára flokki og sýndi hreint ótrúlegan baráttuvilja. Hún endaði í 4. sæti í -48 kg flokki en þess má geta að hún var færð upp um heila tvo þyngdarflokka þar sem ekki voru keppendur í hennar flokki!

Við erum virkilega stolt af okkar unga og efnilega júdófólki. Þau eru frábærar fyrirmyndir og sýna að með dugnaði og góðum æfingum er allt hægt.

Við óskum þeim öllum, sem og þjálfurum deildarinnar, innilega til hamingju með frábæran árangur um helgina.

Áfram KA!