Haustmót Júdósambands Íslands í flokkum U13, U15 og U21 fór fram laugardaginn 3. október í íþróttahúsi Vallaskóla á Selfossi. Keppendur Júdódeildar KA stóðu sig með prýði og komu heim með þrenn silfurverðlaun.
Dagmar Steinþórsdóttir hafnaði í 2. sæti í U15 -70 kg. Jóhanna Heiðrún Ágústsdóttir keppti í U15 -48 kg, einum þyngdarflokki ofar en hún er vön, og náði einnig 2. sæti. Það sama gerði Maria Grazyna Wasowicz, sem keppti upp fyrir sig í U15 -52 kg og hreppti silfrið.
Að keppa upp um þyngdarflokk þýðir að mæta þyngri og oft sterkari andstæðingum, og árangur Jóhönnu og Mariu er því sérstaklega eftirtektarverður.
Júdódeild KA óskar keppendum innilega til hamingju með frábæran árangur og þakkar Eirini Fytrou þjálfara fyrir hennar góða starf. Áfram KA!