Franska júdótímaritið L'Esprit du Judo, sem talið er helsta tímarit júdóheimsins í Evrópu, fjallar um Júdódeild KA í nýjasta tölublaði sínu. Umfjöllunin, sem spannar fjórar blaðsíður undir fyrirsögninni „Ísland – land elds og ísa“, birtist í fastadálki tímaritsins Dojo du Monde, þar sem blaðamenn þess heimsækja júdófélög víðs vegar um heiminn – og að þessu sinni varð Akureyri fyrir valinu.
Blaðamaðurinn Thomas Rouquette heimsótti æfingar deildarinnar í KA heimili og dregur upp mynd af félagi í miklum uppgangi. Iðkendur verða um áttatíu á komandi tímabili, fullorðnum byrjendum fjölgar hratt og innan tveggja ára flytur deildin í nýjan og glæsilegan júdósal þegar stækkun mannvirkja KA lýkur.
Uppganginn rekur blaðið ekki síst til Eirini Fytrou, yfirþjálfara deildarinnar, sem er í aðalhlutverki í greininni. Í viðtalinu lýsir hún þjálfunarheimspeki sinni, sem hverfist um drengskap og góðvild, og þeirri sérstöðu deildarinnar að foreldrum er reglulega boðið upp á dýnurnar með börnunum sínum með þeim „afleiðingum“ að heilu fjölskyldurnar æfa nú saman. Þá segir Hans Rúnar Snorrason, sem setið hefur í stjórn deildarinnar í rúmlega tvo áratugi, frá sögu deildarinnar og sérstöðu Akureyrar.
Verkefnið Allir með fær einnig mikla athygli. Rætt er við Katrínu Árnadóttur, móður hinnar tíu ára Ídu, sem æfir hjá deildinni í gegnum verkefnið, og hún lýsir gleðinni og jákvæðninni sem mætir dóttur hennar á æfingum.
Greininni lýkur með þeim orðum að hjá Júdódeild KA megi sjá júdóíþróttina skila því besta sem hún hefur fram að færa til samfélagsins. Það er mikil viðurkenning fyrir starf deildarinnar að vekja slíka athygli langt út fyrir landsteinana.
Tölublað 122 af L'Esprit du Judo (júlí/ágúst 2026) er að finna á lespritdujudo.com.