Við erum með facebookhóp þar sem fréttir úr starfinu o.fl. koma inn. Hvetjum foreldra til að fara í hópinn til að fylgjast með því góða starfi sem er unnið í fótboltanum í KA.
Við mælum einnig með að skoða fótboltadagatal KA sem gildir tímabilið 2024/2025. Þar má sjá þau mót sem flokkarnir fara á auk þess að sjá má hvenær yngriflokkarnir eru í fríi.
Mikilvægt að allir iðkendur séu tengdir Sportabler til að fylgjast með ef það eru breytingar á æfingatíma og fá upplýsingar um mót og leiki. Ef einhverjar spurningar eru varðandi yngriflokkastarfið er hægt að hafa samband við Alla yfirþjálfara í netfanginu alli@ka.
Athugið tímasetningar kunna að breytast eða æfingadagar að falla niður vegna hátíðisdaga, sumarfrís eða móta. Það er því mikilvægt að flygjast vel með á Abler eða vera í samskiptum við starfsmenn/þjálfara KA ef vafi leikur á um æfingatíma. Hér má finna aðalþjálfara hvers flokks fyrir sig.
Systkinaafsláttur er 10% eða millideildaafsláttur hjá KA er 10%. Afsláttur er ekki veittur af fyrsta gjaldi. Kerfið sér um að reikna afsláttinn eins og við á.
Smellið á abler.io/shop/ka/fotbolti til að fara á skráningarsíðu KA.
Ef þið lendið í vandræðum, eða hafið einhverjar fyrirspurnir um skráningar hafið þá samband við Arnar Gauta Finnsson, gauti@ka.is eða í síma 462-3482 kl. 9-15 á virkum dögum.