Knattspyrnuunnendum verður í júní boðið upp á 10% afslátt af bókinni: 100 ára saga Íslandsmótsins í knattspyrnu, fyrra bindi. Hér er um að ræða glæsilega bók upp á 384 blaðsíður, sem segir sögu knattspyrnunnar á Íslandi í máli og myndum. Í bókinni er sagt frá upphafi knattspyrnunnar á Íslandi frá 1870 fram til að fyrsta Íslandsmótið fór fram 1912 og er sagt frá þróun knattspyrnunnar á Íslandi til 1965. Seinna bindið (1966-2011) kemur út 11. nóvember 2011. Afsláttarverð bókarinnar, fyrra bindi, er kr. 7.900.
Þeir sem kaupa bókina fara um leið í verðlaunapott, sem dregið verður úr þriðjudaginn 2. ágúst 2011.
42 vinningar eru í boði:
1. VINNINGUR: Flug með Icelandair og miðar fyrir tvo á EM-leik Noregs og Íslands í Ósló föstudaginn 2. september.
2. VINNINGUR: Flug með Icelandair og miðar fyrir tvo á EM-leik Noregs og Íslands í Ósló föstudaginn 2. september.
3.-12. VINNINGUR: Hver vinningur er seinna bindið af 100 ára sögu Íslandsmótsins í knattspyrnu.
13.-42. VINNINGUR: Hver vinningur er miðar fyrir TVO á EM-leik Íslands og Kýpur á Laugardalsvellinum 6. September.
Knattspyrnuunnendur geta sent póst á 100.knattspyrna@gmail.com eða farið inn á Fésbókina: 100 ára saga Íslandsmótsins - og fengið þar nánari upplýsingar, hvernig hægt er að nálgast bókina.
(Fréttatilkynning)