2 dagar: Markmiðið er að gera betur en í fyrra

Gulla og Ingvars bíður skemmtilegt verkefni
Gulla og Ingvars bíður skemmtilegt verkefni
Nú eru tveir dagar í að KA hefji leik á Íslandsmótinu 1. deild gegn Leikni, í Reykjavík. Maðurinn í brúnni er nokkuð bjartsýnn fyrir sumarið "Stemningin er mjög góð fyrir byrjuninni. Strákarnir eru búnir að leggja mikið á sig í vetur, heilt yfir er ég mjög sáttur við þróunina á liðinu en nú byrjar alvaran og strákarnir eru tilbúnir til að takast á við alvöruna." 


KA-mönnum var spáð sama sæti og þeir luku leik í í fyrra, 9.sæti, en Gulli stefnir hærra. "Markmiðið er að gera betur en í fyrra og hífa liðið upp töfluna. Við þurfum að ná stöðugleika í þessari deild sem verður bæði erfið og krefjandi. Ég tel að spá Fotbolta.net komi ekkert svakalega á óvart. Við erum eins og mörg lið óskrifað blað, margir nýir leikmenn og yngri leikmenn sem hafa ekkert svakalega mikla reynslu í þessari deild, en við vitum hvað við getum og ætlum að sjálfsögðu að fara hærra en í níunda sætið," sagði Gulli

Breytingarnar á hópnum frá síðasta tímabili eru talsverðar, þeir fjórir leikmenn sem spiluðu fremst á mvellinum í fyrra yfirgáfu KA og nýr maður er í brúnni, en "talsverðar breytingar" eru ekki endilega neikvæðar. "Ég er mjög sáttur við nýju drengina, þeir eru ekki bara góðir fótboltamenn, heldur svínvirka þeir í hópnum og hafa aðlagast vel bæði hjá félaginu og í bænum."

Deildin í ár er verulega sterk og eru nánast öll liðin sem geta gert tilkall til toppbaráttu, stöðugleiki er lykillinn að því að komast upp. "Fyrirfram er þetta gríðarlega sterk deild, mörg lið líta mun betur út en í fyrra. Við fáum tvö mjög sterk lið upp í deildina og "pepsi liðin" frá því í fyrra verða sterk. Hver leikur verður mjög erfiður og það er ekkert bókað."  
"Ég skora á stuðningsmenn KA í höfuðborginni að fjölmenna á Leiknisvöllinn og hvetja sína menn," sagði Gulli að lokum og býst heimasíðan við því að KA menn skorist ekki undan þessari áskorun og láti vel í sér heyra á föstudaginn!