2 flokkur: KA 2 -1 Þór

Það var ekkert gefið eftir í kvöld  Mynd Þórir Tryggva
Það var ekkert gefið eftir í kvöld Mynd Þórir Tryggva
Annar flokkur tók á móti Þór í, eins og við var að búast, miklum baráttuleik þar sem bæði lið áttu lipra spretti og góð færi á milli harðra tæklinga og smá handalögmála. Leikurinn besta skemmtun og alvöru nágrannaslagur.

KA-menn byrjuðu leikinn betur og settu pressu á Þórsarana strax í byrjun en gestirnir voru þó hársbreidd frá því að ná forystunni á 13. mínútu þegar þeir komust í skyndisókn 3 á móti 2 varnarmönnum KA en eftir fyrirgjöf á fjær endaði boltinn í þverslánni og KA-menn hreinsuðu.

Vel var mætt á leikinn bæði af hálfu KA og Þórs og var ágætis stemning á vellinum.  Leikurinn var opinn upp á gátt og á 24. mínútu fékk Davíð Örn frábært færi eftir hornspynu en markvörður Þórs varði og Þórsarar geystust upp og komust inn fyrir vörn KA en  Ólafur Jóhann í marki KA varði meistaralega frá sóknarmanni Þórs sem kominn var einn í gegn.

Davíð hélt áfram að skapa færi, eftir góðan samleik inn í teig við Gunnar Örvar átti hann flott skot á lofti en markvörður Þórs enn og aftur vel vakandi. Aci tók hornið og eftir smá darraðardans í teignum kom skot frá Gunnari Örvari en tréverkið var illa staðsett og varði boltann útaf 

Seinni hálfleikur var bráðskemmtilegur og áttu okkar menn fyrsta orðið í hálfleiknum þegar Jakob Hafsteinsson átti flotta fyrirgjöf frá vinstri á hausinn á hinum hávaxna Gunnari Örvar sem skallaði boltann fallega í fjærhornið og KA komið í 1-0 

Sléttum 10 mínútum síðar komust Þórsarar í enn eina skyndisókn sína en að þessu sinni komst sóknarmaður Þórs framhjá Ólafi í markinu og lagði boltan í autt netið og staðan orðin 1-1.

Eftir þetta var kominn mikill hiti í menn og gulu spjöldin fóru að fljúga á loft.

Títtnefndur Jakob fékk á 70. mínútu frábært færi til að koma KA yfir á ný þegar hann fékk boltann á fjær eftir aukaspyrnu. Jakob tók boltann á kassann og “sliceaði”,  eins og segir á góðri íslensku, en boltinn fór aðeins millimetra framhjá fjærstönginni.

Það var svo á 80. mínútu sem hlutirnir gerðust. KA-menn áttu flottan bolta innfyrir þar sem Gunnar Örvar var tilbúinn að skalla boltann, snéri baki í markið, þegar markvörður Þórs kom út á feykilegri siglingu og hjólaði í bakið á Gunnari sem fékk boltann í hausinn og aftur fyrir, dómarinn þvertók fyrir að um vítaspyrnu væri að ræða þrátt fyrir mjög augljóst brot, en engu að síður dæmdi hann KA-mönnum horn sem var kannski en vitlausara, en við KA-menn þökkum fyrir það því Aci átti flottan bolta á fjær þar sem Ómar Friðriksson tók boltann niður og hamraði honum í netið og KA-menn komnir í 2-1 og allt ætlaði um koll að keyra.

Eftir þetta héldu KA-menn nánast boltanum en Þórsarar fengu sénsa til að jafna leikinn en varnarleikur KA var þéttur og illviðráðanlegur. Í blálokin sauð uppúr. Eftir skrautlega tæklingu frá Aci og einhvern barning við hliðarlínuna hópuðust allir leikmenn saman eldrauðir í framan þangað til Slobodan Milisic gekk að. Við það róuðust menn, enda enginn til í serbneska "nautið".

En leiknum leik með frábærum 2-1 sigri KA sem er á blússandi siglingu þesa dagana og komnir með 10 stig af 12 mögulegum í síðustu 4 leikjum og sitja því í 6. sæti með 15 stig en aðeins 3 stig eru á toppinn. En erfitt er að ráða í stöðuna þar sem nokkur lið eru einungis búin með 8 leiki en önnur 10, líkt og KA.

Næsti leikur er 27. júli þegar strákarnir fá Vesturbæjarstórveldið í heimsókn.

-JMK