Bróðurpartur fyrri hálfleiks fór fram á vallarhelmingi Draupnis og áttu KA-menn mýmörg færi, en allt kom fyrir ekki, inn vildi boltinn ekki. Til marks um það átti KA átján skot á mark Draupnis í fyrri hálfleik og sex hornspyrnur. Draupnismenn gáfu sig alla í leikinn og börðust af krafti og litlu mátti muna að þeir settu mark undir lok hálfleiksins. En það var sem sagt markalaust í hálfleik.
Síðari hálfleikurinn spilaðist svipað og sá fyrri. Sóknarþungi KA bar loks árangur þegar Hallgrímur Mar Steingrímsson lagði boltann snyrtilega í netið. Skömmu síðar bætti Haukur Heiðar Hauksson við öðru marki beint úr aukaspyrnu og undir lokin innsiglaði Guðmundur Óli Steingrímsson sigurinn með þriðja markinu. Draupnismenn áttu einnig sín færi í síðari hálfleik og þurfti Sandor Matus einu sinni að taka á honum stóra sínum þegar hann varði fast skot út við stöng.