Fjórði flokkur karlahóf Íslandsmótið um liðna helgi með samtals fjórum leikjum. Á laugardaginn spilaði A-liðið við Fjarðabyggð/Leikni og vannst sá leikur 0-5. B-liðið vann einnig sinn leik 4-7 en þeir spiluðu aftur við Fjarðabyggð/Leikni á sunnudeginum og unnu hann 3-4 í hörkuspennandi leik. Allir þessir þrír leikir voru leiknir í Fjarðabyggðahöllinni þar sem hitastigið var líkara því sem gerist í janúar.
Á heimleiðinni var stoppað á Egilstöðum þar sem A-liðið spilaði við Hött. Aðstæður voru virkilega erfiðar eða 2 gráður, rok og rigning og var mörgum orðið verulega kalt í lok leiks og þá sérstaklega markmanni KA-liðsins sem fékk lítið að gera í leiknum. Það fór að lokum þannig að KA-liðið vann með 8 mörkum gegn einu og skoraði Eyfirðingurinn Ágúst Örn Víðisson þrennu í leiknum.
A-liðið heldur til Sauðarkróks á föstudaginn þar sem leikið verður við Tindastól/Hvöt.